Jos Leijdekkers komst snemma í kast við lögin. Hann er fæddur 1991 og var strax 2011, þá tvítugur, dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps.Það er eini dómurinn sem Jos Leijdekkers hefur setið af sér. Frá því í febrúar 2024 og fram í maí á þessu ári fékk hann á sig alls níu fangelsisdóma í Hollandi og Belgíu, samtals næstum 100 ára fangelsi, fyrir umfangsmikið dópsmygl og aðild að nokkrum morðum sem hann á að hafa fyrirskipað. Þessir dómar voru allir kveðnir upp að Leijdekkers fjarstöddum en hann hefur að því er talið haldið sig að mestu í Tyrklandi og við vesturströnd Afríku síðan 2020. BORGARSTJÓRI Í KÓKAÍNHÖFUÐBORGINNI En glæpaferill hans hófst mun fyrr og kókaínbaróninn Bolle Jos, eða Feiti-Jos, varð til á örstuttum tíma eftir að hann var laus úr fangelsi 2016.Jos Leijd