Dýraverndarsamband Íslands kallar eftir auknu gagnsæi í svínahaldi og segir að það sé óásættanlegt að starfsemin sé svo lokuð að almenningur fái fyrst innsýn í aðbúnað dýranna þegar einstaklingur grípur til þess að brjótast inn til að afla myndefnis.„Búrekstur sem ekki þolir dagsins ljós er rekinn á hæpnum forsendum. Almenningur á rétt á að vita við hvaða aðstæður dýr, sem alin eru til matvælaframleiðslu, lifa og hvernig komið er fram við þau. Gagnsæi og virkt eftirlit eru þar grundvallarforsendur. DÍS telur einnig brýnt að opinbert eftirlit með þessari starfsemi verði eflt,“ segir í yfirlýsingu frá samtökunum. FRAMLEIÐSLUSJÓNARMIÐ VEGI ÞYNGRA EN VELFERÐ DÝRA Maður sem braust inn á svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesinu í maí birti myndband frá innbrotinu á Instagram í síðustu viku. Í mynd