Fátt breyst á ári frá löggildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks

Lítið hefur breyst síðan Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks fyrir ári síðan að mati ÖBÍ réttindasamtaka. Samningurinn kveður á um að fatlað fólk skuli hafa jafnan aðgang að öllum sviðum samfélagsins.„Við finnum ekkert sérstaklega fyrir því að eitthvað hafi breyst þannig séð, þannig að baráttan okkar heldur alveg áfram,“ segir Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ.Alma segir að samtökin hefðu viljað sjá frekari breytingar.„Við vitum náttúrulega að það tekur allt tíma og svoleiðis, en já við hefðum kannski viljað sjá þau sem fara með framkvæmdina – að þau væru meðvitaðri um hvað felst í þessu,“ segir Alma. BAKSLAG Í ÞJÓNUSTU SVEITARFÉLAGA „Eins og varðandi þjónustu sem er á forræði sveitarfélaganna, hún hefur ekkert breyst. Ef eitthvað er þá er frekar svon
Fátt breyst á ári frá löggildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar