Maður sem skaut sex manns til bana og særði sextán í Kraká í Póllandi um helgina lést í morgun. Hann er 24 ára Pólverji og særðist lífshættulega eftir að hann skiptist á skotum við lögreglu.Maðurinn ók inn á torg í gamla miðbænum í Kraká um miðjan dag á laugardag og hóf að skjóta tilviljanakennt á fólk. Hann drap sex manns. Sextán særðust, þar á meðal tveir lögreglumenn. Annar þeirra er alvarlega særður.Árásarmaðurinn var með grímu, klæddur herfatnaði og í skotheldu vesti þegar hann framdi ódæðið. Fyrir árásina átti hann ekki sakaferil að baki.Stuttu eftir árásina fann lögregla foreldra og 21 árs gamla systur mannsins látin í íbúð þeirra fyrir utan Kraká.Árásin í miðbæ Krakár er rannsökuð sem hryðjuverk. Ríkissaksóknari Póllands sagði í gær að morð á sex manns með byssu og tilraun til að d