Lögregla handtók mann sem var að stela vinningum úr spilakassa á bar á höfuðborgarsvæðinu í kvöld eða nótt. Þegar lögregla hafði afskipti af honum framvísaði maðurinn skilríkjum annars manns.„Þó aðeins hluta þess þar sem það hafði verið klippt í sundur,“ segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir verkefni hennar milli klukkan 17 í gær og 5 í morgun.Atvikið varð í umdæmi lögreglustöðvar 1 sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi.Á sama svæði var ökumaður sem reyndist vera með mikið magn fíkniefna, peninga og farsíma með sér handtekinn. Hann er grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna.Hann hafði meðal annars ekið gegn rauðu ljósi, sleppt því að gefa stefnuljós, var með hníf meðferðis, var á ótryggðu ökutæki og var að brjóta reynslulausn. Hann var einnig