Í dag er spáð norðlægri átt 5-10 m/s og dálitlum éljum eða skúrum, en slyddu á norðaustanverðu landinu fram undir morgun. Hiti verður á bilinu 0 til 8 stig samkvæmt spá. Útlit fyrir nokkuð rólegt veður hjá okkur fram á föstudag samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings.