Dálítil él og víða hált

Búast má við hæglætisveðri í dag. Norðan stinningsgola eða kaldi. Dálítil él eða skúrir en bjartviðri á sunnan- og vestanverðu landinu. Hiti um og yfir frostmarki.Þetta kemur fram í veðurpistli frá Veðurstofu Íslands.Vegagerðin varaði í gær við því að það yrði hált í dag, einkum um landið norðanvert en einnig suðvestantil. Á vef hennar umferðin.is má sjá að snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru víða um land.Meðal annars er hálka á Holtavörðuheiði, í Borgarfirði og á Vatnsskarði. Hálkublettir eru á Hellisheiði, í Þrengslum og nokkuð víða á Suðurnesjum. Fyrir sunnan er hálka á hringveginum milli Þjórsár og Markarfljóts og hálkublettir á flestum öðrum leiðum.Í nótt hvessir nokkuð og á morgun má búast við 8–15 m/s úr suðvestanátt með dálitlum éljum. Þykknar upp vestantil en snýst í hægari norð
Dálítil él og víða hált

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar