Ísafjörður er frábær staður til að alast upp á. Samfélagið er gott, þar er öflugt íþróttastarf og stutt í nánast allt. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa alist þar upp og gæti vel hugsað mér að flytja aftur vestur í framtíðinni. En til þess að það gerist þarf meira en góðar æskuminningar.