14 fórust í eldsvoða í fjölbýlishúsi

Eldsvoði í háhýsum í Hong Kong í 26. nóvember 2025 varð 168 að bana. Myndin úr safni.EPA / LEUNG MAN HEIMinnst 14 fórust í eldsvoða í fjölbýlishúsi í Taiyuan í Norður-Kína í gær. 24 voru auk þess fluttir til aðhlynningar á spítala.Eldsupptök eru ókunn en mannskæðir eldsvoðar eru algengir í Kína vegna slakra byggingareglugerða og vinnustaðaöryggi er oft ábótavant.Yfirvöld í Kína fóru í herferð gegn eldhættu í háhýsum í nóvember á síðasta ári eftir að 168 fórust í mannskæðum eldsvoða sem braust út í nokkrum háhýsum í Hong Kong 26. nóvember.Mánuði síðar fórust 12 í eldsvoða í íbúðarhúsi í Guangdong-héraði í suðurhluta Kína og minnst 28 fórust í eldsvoða í skóverksmiðju í austurhluta Kína í júlí.
14 fórust í eldsvoða í fjölbýlishúsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar