Yfirvöld í Mexíkó greindu frá því í gær að einn af helstu leiðtogum Jalisco New Generation (CJNG) eiturlyfjahringsins hefði verið handtekinn. Glæpasamtökin eru önnur tveggja helstu glæpasamtaka Mexíkó.Hinn handtekni Rafael Alvarez, sem einnig er þekktur sem R2, stýrði glæpahópi sem tengist morðum, fíkniefnasmygli og fjárkúgunum gagnvart avókadóræktendum. 19 aðrir voru handteknir í sömu hernaðaraðgerð.Glæpahópurinn starfar í ríkjunum Jalisco og Michoacan í Mexíkó. Alvarez er einnig grunaður um að tengjast morðinu á Carlos Manzo, vinsælum borgarstjóra borgarinnar Uruapan sem var þekktur fyrir harða afstöðu gegn skipulagðri glæpastarfsemi.Eiturlyfjahringurinn CJNC er önnur tveggja helstu glæpasamtaka Mexíkó og voru skilgreind sem erlend hryðjuverkasamtök af Bandaríkjastjórn á síðasta ári. CJN