Segir ólíklegt að árásum gegn Írönum verði haldið áfram

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir mjög ólíklegt að árásum verði framhaldið gegn Írönum. Hann sagði í viðtali við CNN í gær að svo lengi sem viðræður væru í gangi við Írana þá væri ólíklegt að það yrði nauðsynlegt.Hann hefur hótað frekari árásum á undanförnum vikum og gaf til kynna að árásir myndu halda áfram að loknum þingkosningum í Bandaríkjunum.Hann hefur viðurkennt að stríðið við Íran sé að einhverju leyti ástæða þess að Repúblikanaflokknum gekk svo illa í kosningunum.Í viðtalinu við CNN sagði Bandaríkjaforseti að Íranar væru þó undir mikilli pressu efnahagslega og því verði stjórnvöld landsins að samþykkja friðarsamning á forsendum Bandaríkjanna.Fyrr um daginn sagði utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, í viðtali á íranskri sjónvarpsstöð að viðræðum við Bandaríkin hefði verið fr
Segir ólíklegt að árásum gegn Írönum verði haldið áfram

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar