Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í viðtali við fjölmiðla í gær að þörfin fyrir öryggistryggingu fyrir Úkraínu og Evrópu væri umræðuefni sem hefði ítrekað komið upp í tengslum við viðræður um að binda enda á stríðið.Hann sagði lykilspurninguna vera: „Hvernig mun öryggisuppbygging í Úkraínu og Evrópu líta út þegar stríðinu lýkur?“ Hann vísaði í orð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á fimmtudag sem spáði því að það væri stór samningur á leiðinni sem næði ekki aðeins til Rússlands, heldur einnig Úkraínu og Evrópu.Rubio sagði að nokkur árangur hefði náðst í umræðu um hvernig öryggismálum verði háttað. Hann bætti við að ekkert hefði verið ákveðið endanlega með samning en kannski yrði hægt að ná einhverjum árangri á þríhliða fundi Bandaríkjanna, Rússlands og Úkraínu sem fer fram í