Minnst tvær konur og þrjú börn létust þegar sandbakki hrundi á tjöld suður af Deir al-Balah á Mið-Gaza í dag. Sandbakkinn féll eftir miklar rigningar og flóð sem verið hafa á Gaza undanfarna daga.Flætt hefur inn í þúsundir tjalda hjá fólki sem hefst við í tjöldum eftir að hafa misst heimili sín í árásum Ísraelshers. Margir hafa neyðst til að yfirgefa tjöld sín til að reyna að finna annað skjól.Mahmud Bassal, talsmaður almannavarna á Gaza, segir að enn sé nokkurra saknað. Leit að þeim stendur yfir. Hann segir að almannavarnir hafi varað fólk við að setja upp tjöld eða dvelja nálægt sandhaugum eða hólum, sér í lagi í rigningu. Hann hvatti hjálparsamtök til að útvega nauðsynlegan búnað fyrir fólkið.