Merz tilnefnir Ilse Aigner sem næsta forseta Þýskalands

Friedrich Merz kanslari Þýskalands tilkynnti í gær að hann ætli sér að tilnefna stjórnmálakonuna Ilse Aigner næsta forseta Þýskalands á næsta ári. Aigner er 61 árs gömul og er í CSU, systurflokki Kristilegra demókrata í Bæjaralandi. Hún er nú forseti þingsins í Bæjaralandi.Tilnefning Merz tryggir Aigner kjör til forseta þann 30. janúar næstkomandi en þeir sem greiða atkvæði um forsetann koma nánast eingöngu úr tveimur deildum þýska þingsins. Að öllu óbreyttu tekur Aigner við forsetaembættinu af Fank-Walter Steinmeier þegar forsetatíð hans lýkur í mars á næsta ári.Þetta verður í fyrsta sinn sem kona verður forseti Þýskalands. Staða forsetans er að mestu táknræn þótt hann hafi ýmsum hlutverkum að gegna samkvæmt stjórnarskrá landsins, svo sem að staðfesta ný lög.Aigner er reynslumikil og virt
Merz tilnefnir Ilse Aigner sem næsta forseta Þýskalands

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar