Thomas Frank er líklegastur til að taka við sem stjóri Crystal Palace ef Pierre Sage verður rekinn. Sky Sports greinir frá þessu. Stjórn Crystal Palace hefur ekki enn tekið ákvörðun en Sage mun líklega missa starfið eftir sjöunda tapið á tímabilinu en liðið tapaði gegn Liverpool í dag. Liðið er á botni úrvalsdeildarinnar.