Kristall Máni Ingason skoraði glæsilegt mark í 2-2 jafntefli Brann gegn Fredrikstad í norsku deildinni í kvöld. Fredrikstad náði tveggja marka forystu en Kristall minnkaði muninn á 82. mínútu þegar hann skoraði með utanfótarskoti í fjærhornið úr teignum. Brad Finne bjargaði stigi fyrir Brann með marki á sjöttu mínútu í uppbótatíma.