Að minnsta kosti 34 drukknuðu á leið frá Senegal

Að minnsta kosti 34 manns drukknuðu eftir að lítill flatbotna trébátur með farandfólk innanborðs sökk undan norðvesturströndum Senegals, um 180 kílómetra norður af höfuðborginni Dakar.Báturinn var á leiðinni til Kanaríeyja. Fréttastofan AFP greinir frá því að þúsundir hafi látist á undanförnum árum í tilraunum til að komast til Kanaríeyja á Spáni frá Vestur-Afríku.Bassirou Diomaye Faye, forseti Senegal, skrifaði á Facebook í dag að allar stöðvar hafi verið virkjaðar til að leita þeirra sem saknað er, veita þeim sem lifðu af aðhlynningu og styðja við fjölskyldur hinna látnu.Bátur farandfólks við höfn í El Hierro-eyju, sem tilheyrir Kanaríeyjum á Spáni. Um tíu manns komu með þessum bát. Myndin er tekin í október 2025 og tengist fréttinni ekki beint.EPA / Gelmert Finol
Að minnsta kosti 34 drukknuðu á leið frá Senegal

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar