Damian Vidagany, yfirmaður fótboltamála hjá Aston Villa, tjáði sig á X um dramatískt jöfnunarmark Patrick Dorgu í 4-4 jafntefli Man Utd og Villa í kvöld. Dorgu skoraði með skalla eftir horn í blálokin en Vidagany fannst Senne Lammens, sem var kominn inn í teiginn, hafa brotið á Zion Suzuki.