Vogur leitar leiða, í samráði við Landspítala, til að manna starfsemina svo hægt sé að taka á móti fleirum í meðferð. Álag hefur aukist á fíknigeðdeild vegna ástandsins á Vogi.Sjúkrahúsið á Vogi er rekið á minna en helmingsafköstum vegna manneklu eftir krísuástand innan SÁÁ sem rekur Vog.Þar eru nú 15 sjúklingar í vímuefnameðferð en eru að jafnaði 35.Alma Möller heilbrigðisráðherra segir borðleggjandi að þetta leiði til lengri biðlista og lengri biðtíma. > Þetta er auðvitað óásættanlegt. Það eru komnir tveir mánuðir þar sem sjúkrahúsið hefur verið á undir helmingsafköstum. Alma segir að vonir standi til að úr fari að rætast, verið sé að gera ráðstafanir til að Vogur verði starfandi að fullu í lok mánaðarins.Heilbrigðisráðherra segir óásættanlegt að biðlistar í fíknimeðferð hafi lengst í