Á annað hundrað manns fögnuðu 100 ára afmæli kýrinnar Huppu

Huppa var fædd 3. nóvember 1926 og haldið var upp á afmælið með fjölmörgum erindum og umræðum í félagsheimilinu á afmælisdeginum sjálfum.Huppa var brandhuppótt, rauð, svört og hvít og náði 17 ára aldri. Hún var mjög mjólkurlagin og með mjög góða erfðaeiginleika. Hún mjólkaði líka einstaklega vel.En eigum við einhverja sambærilega kú í dag?„Nei en auðvitað hafa orðið miklar framfarir í nautgriparækt þannig að kýrnar í dag mjólka gríðarlega mikið og mikið meira en hún gerði en erfiðayfirburðir Huppu voru alveg óumdeilanlegir á sínum tíma,” segir Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands.Það var gaman að sjá allar myndirnar á veggjum félagsheimilisins af kúm sem nemendur í Flúðaskóla teiknuðu og lituðu.„Já, krakkarnir tóku sig til og gerðu verkefni um Huppu þannig að v
Á annað hundrað manns fögnuðu 100 ára afmæli kýrinnar Huppu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar