Hátt í þrisvar sinnum fleiri greinast hlutfallslega með lekanda hér á landi en í öðrum Evrópulöndum. Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að fólk greinist sem fyrst.Á fyrstu níu mánuðum ársins greindust 283 með lekanda hér á landi og hafa ekki verið fleiri í 40 ár. Þetta er hátt í 20% aukning síðan í fyrra og fimmföldun frá 2021.Þetta eru 72 á hverja 100.000 íbúa sem er talsvert meira en meðaltalið í Evrópu sem er 27 á hverja 100.000. KARLAR Í MIKLUM MEIRIHLUTA 88% þeirra sem hafa greinst það sem af er ári voru karlar - eða 249 og 12% konur eða 34. Mesta aukningin í ár er hjá körlum sem eru 30 ára og eldri.Fólk á öllum aldri greinist með lekanda en flestir á aldrinum 30 - 44 ára. 57% þeirra sem hafa greinst í ár eru með íslenskt ríkisfang. ÝMSAR ÁSTÆÐUR KOMA TIL GREINA „Það sem hefur veri