Miðstjórnarfundur Framsóknarflokks var haldinn á Laugarbakka í Miðfirði um helgina.Í ályktun fundarins kemur fram að ófaglegum vinnubrögðum barna- og menntamálaráðherra við innleiðingu námsmats sé hafnað.Þá segir einnig að flokkurinn leggist gegn aukinni skattheimtu á ferðaþjónustu og að virðisaukaskattur skuli haldast í 11%. HAFNA FJÁRSVELTISSTEFNU STJÓRNVALDA GAGNVART FARSÆLD BARNA Ályktunin er birt í heild sinni á vef Framsóknar.Þar segir að Framsókn leggi til að skattleysismörk hækki um 0,5% umfram verðlag og að fjárhæð barnabóta skuli fylgja verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.Þá kemur fram að ríkið skuli tryggja sveitarfélögum fjármagn til að veita börnum stuðning.„Það er með öllu ótækt og óverjandi að ríkisstjórnin standi ekki við þá samninga sem gerðir hafa verið, ekki síst veg