Tveir erlendir ferðamenn farþegar bílsins sem endaði í Kleifá

Farþegar bílsins sem endaði í Kleifá í morgun eru erlendir ferðamenn. Ekki er vitað um líðan þeirra. Jónas Hallgrímur Ottósson, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Vesturlandi, segir að útkall hafi borist klukkan hálf ellefu. Aðrir vegfarendur tilkynntu slysið til lögreglu.Bíllinn endaði í Kleifá stuttu frá Vatnaleið. Óskað var eftir aðstoð björgunarsveita og þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út. Tveir erlendir ferðamenn voru í bílnum sem hafnaði í Kleifá í dag. Ekki er vitað um líðan þeirra en báðir voru fluttir á Landspítalann, annar í þyrlu Landhelgisgæslunnar og hinn með sjúkrabíl. Lögregla rannsakar tildrög slyssins.„Annar farþeginn komst út, hinn ekki og næst síðan út þegar björgunarlið kemur á vettvang,“ segir Jónas. Sá sem komst út af sjálfsdáðum var fluttur af vettvangi með sjúkra
Tveir erlendir ferðamenn farþegar bílsins sem endaði í Kleifá

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar