Ísraelska sjónvarpsstöðin Channel 13 hefur vikið fyrrverandi knattspyrnustjörnunni og fjölmiðlamanninum Eyal Berkovic tímabundið úr starfi eftir að hann lét rasísk ummæli falla í beinni útsendingu kvöldið áður. Þar dró hann í efa að Arabar og múslimar hefðu til þess hæfni að bera doktorsheitið. Berkovic lét ummælin falla í samtali við Suleiman Maswadeh, fréttaritara stöðvarinnar í Washington, í þættinum Moria and...