Fjarstýrðir bílar hafa gerbreytt hversdagslífi hinnar tólf ára gömlu Birtu Maríu, sem er með sjaldgæft heilkenni og hafði lengi átt erfitt með að finna sig í hefðbundnu íþróttastarfi. Áhugamálið hefur að sögn foreldranna skilað miklum framförum í málþroska, hreyfifærni og félagslegum samskiptum hennar. Eftir að hafa sjálf orðið vitni að breytingunum hafa foreldrar Birtu, þau Guðbergur Reynisson og Arnbjörg Elsa, eða Beggi og Elsa eins og þau eru oftast kölluð, ákveðið að gefa öðrum börnum með sérþarfir tækifæri til að kynnast áhugamálinu.