Verðlagning Bláa Lónsins í fjórtán milljarða útboði á næstu dögum er um fimmtungi undir meðaltali erlendra samanburðarfélaga miðað við áætlaðan EBITDA-hagnað á næsta ári, sem byggist á væntingum um talsverðan afkomuvöxt og samlegð vegna kaupanna á Arctic Adventures. Hlutafjárútboðinu, sem fer fram við aðstæður sem einkennast af ládeyðu á markaði, er ætlað að styðja við verulegar fjárfestingar Bláa lónsins á næstu árum sem eru sagðar eiga að leggja grunn að „nýju vaxtarskeiði“ félagsins.