Leigutekjur fasteignafélaganna Heima, Reita og Eikar jukust samanlagt um 4,6 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins, miðað við sama tímabil í fyrra. Félögin höfðu alls 37,2 milljarða í leigutekjur, sem er 14 prósenta aukning og talsvert umfram almenna verðlagsþróun. Rekstrarhagnaður þeirra fyrir matsbreytingar jókst enn meira, eða um 15 prósent. Á sama tíma hækkuðu hrein fjármagnsgjöld félaganna um rúma...