Árshátíð verjenda fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar rúmlega 70 sakborningar svöruðu til saka í Landsbankamálinu. Það var vart þverfótað fyrir verjendum og sakborningum á svæðinu og er vont að hugsa til þeirra verjenda sem fengu ekki kallið. Útundanóttinn (e. fomo) verður vart verri.