Rúmlega þriðjungur þjóðarinnar, eða um 34%, ber mjög lítið eða fremur lítið traust til stjórnar Landsvirkjunar. Þetta kemur fram í könnun Maskínu sem unnin var fyrir Sprengisand á Bylgjunni. 37% segjast treysta stjórninni í meðallagi en 29% segjast treysta henni mikið eða fremur mikið. FRUMKVÆÐISRANNSÓKN FLÝTT Fyrir helgi samþykkti stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis að hefja frumkvæðisrannsókn á samskiptum Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra og fráfarandi forstjóra Harðar Arnarsonar.Miklar deilur hafa verið á Alþingi um samskiptin en stjórnarandstaðan hefur sakað ráðherra um að hafa sagt ósatt um samskipti sín við fyrirtækið. Daði Már hefur hafnað þessu.Daði Már hvatti sjálfur nefndina til að athuga öll samskipti vegna uppsagnar Harðar Arnarsonar, fyrrum forstjóra Landsvi