Íbúar Hrunamannahrepps eru nú 1.018, en voru 982 í desember 2025. Þeim hefur því fjölgað um 36, eða um 3,7% á árinu sem er að líða. Aldís Hafsteinsdóttir sveitarstjóri segir þetta ánægjulega þróun, sem gefi tilefni til bjartsýni og skapi tækifæri til að efla samfélagið enn frekar.„Já, það er allt að gerast og það er gaman þegar það er fjör og fólki fjölgar og mikið um að vera. Okkur fjölgar og fjölgar og nú erum við búin að ná því að komast yfir þúsund íbúa markið og þá erum við þokkalega sátt en auðvitað viljum við gjarnan sjá fleiri, það eru allir velkomnir,” segir Aldís.Aldís fagnar mikilli uppbyggingu í sveitarfélaginu.„Já, bæði er verið að byggja hér mikið af íbúðarhúsnæði af fjölbreyttum tegundum. Það er líka verið að byggja í dreifbýlinu fjós, reiðskemmur og fleira þannig að það er