Skotárás í Kraká rannsökuð sem hryðjuverk

Ríkissaksóknari Póllands tilkynnti í morgun að skotárás í Kraká í gær væri rannsökuð sem hryðjuverk. Í tilkynningu hans segir að árás sem þessi, morð á sex manns með byssu og tilraun til að drepa marga fleiri, þar á meðal lögreglumenn, falli undir skilgreiningu á hryðjuverki.Torgið þar sem árásin var framin er enn girt af og fólk hefur komið í miðbæinn síðan í gær og lagt kerti til minningar um þau sem biðu bana. Ódæðisverkið var framið í gamla miðbænum sem er vinsæll bæði meðal borgarbúa og ferðamanna. Yfirvöld hafa lýst yfir tveggja daga þjóðarsorg.Maðurinn ók inn á torg í gamla miðbænum í Kraká um miðjan dag í gær og hóf að skjóta tilviljanakennt á fólk. Hann drap sex manns. Þrír þeirra voru Pólverjar, einn var Breti og enn á eftir að bera kennsl á tvo. Maðurinn særði sextán, þar á meða
Skotárás í Kraká rannsökuð sem hryðjuverk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar