Björgunarsveitir og viðbragðsaðilar eru á vettvangi alvarlegs slyss á sunnanverðu Snæfellsnesi. Bifreið fór þar út í á.Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út.Búið er að kalla út björgunarsveitir og viðbragðsaðila vegna bíls sem fór út í á á Snæfellsnesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið á vettvang. Tveir voru í bílnum að sögn lögreglunnar á Vesturlandi.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.Jónas Hallgrímur Ottósson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Vesturlandi, segir að tveir hafi verið í bílnum. Slysið átti sér stað rétt áður en komið er að Vatnaleið.Annar þeirra sem voru í bílnum komst út af sjálfsdáðum en hinn þurfti aðstoð. Ekki er vitað um líðan þess seinni. Vinna stendur enn yfir á vettvangi.Fréttin verður uppfærð