„Kjallarakabarett er bara vitleysa,“ segir Margrét Erla Maack. Þarna sameinast burlesque, sirkus og dragsenan á Íslandi í fjöllistasýningu einu sinni í mánuði í Þjóðleikhúskjallaranum.Á vefsíðu sýningarinnar stendur: „Vinsamlega athugið að sýningin er svo sannarlega bönnuð börnum og hentar ekki þeim sem óttast undur mannslíkamans,“ en nekt spilar stóra rullu á sýningunni. „Við erum ekkert endilega að gera einhver atriði sem snúast um einhvern sexytime. Mér finnst nekt fyrst og fremst ógeðslega fyndin. Mér finnst hún afhjúpandi. Ef fólk ætlar bara að koma og sjá einhverja bera kroppa þá er það alls ekki að fara að fá það,“ segir Margrét Erla.Þú getur séð líflegt og skemmtilegt viðtal við Margréti Erlu Maack og dragdrottninguna Gógó Starr í spilaranum fyrir ofan.