Sæmi Rokk Pálsson, áður Sæmundur Pálsson, fyrrverandi lögregluþjónn, lífvörður, leikari og dansari, er látinn. Hann var 91 árs gamall.Sæmi breytti nafni sínu árið 2018 úr Sæmundur Pálsson í Sæmi Rokk. Hann vakti mikla athygli á unglingsárum sem rokkdansari og hlaut þá viðurnefnið sem hann varð þekktur fyrir.Hann átti síðar eftirminnilega innkomu í kvikmyndinni Með allt á hreinu frá 1982 þegar hann lék persónuna Óliver Tvist þar sem hann sagðist tvista til að gleyma. VÍÐFRÆG VINÁTTA VIÐ BOBBY FISCHER Margir muna vel eftir vináttu hans og skákmeistarans Bobby Fischer en Sæmi starfaði um tíma sem lífvörður Fischer. Þeir kynntust í Reykjavík árið 1972 þegar Fischer háði þar skákeinvígi við hinn rússneska Boris Spassky.Sæmi aðstoðaði síðar Fischer við að flytja til Íslands árið eftir að Fisc