Lögreglan í Póllandi hefur staðfest að fólkið sem fannst látið á heimili byssumannsins sem stóð að skotárásinni á aðaltorginu í Kraká í gær voru foreldrar hans og systir hans, sem var 21 árs.Að sögn lögreglu voru áverkar á líkunum í fyrstu metnir sem skotsár. TVEGGJA DAGA ÞJÓÐARSORG Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, greindi frá líkfundinum á blaðamannafundi í gærkvöld. Tusk sagði árásina hryðjuverk og að Pólverjar hefðu ekki áður orðið fyrir jafn alvarlegri árás áður. Tveggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu.Þrjú fórnarlömb árásarmannsins sem hann skaut á torginu eru Pólverjar, einn Breti og ekki hefur verið greint frá þjóðernum hinna tveggja. Fimm hinna særðu eru erlendir ríkisborgarar frá Austurríki, Bretlandi, Þýskalandi, Portúgal og Rússland.Árásarmaðurinn er tu