Garðar Forberg ólst upp í Lúxemborg og nam við liðsforingjaskóla þýska hersins. Hann rak flugfélag í Litháen um árabil og starfaði við friðargæslu í Kósóvó og Afganistan. Hann var hermálafulltrúi Íslands í hermálanefnd NATO í Brussel og varnarmálafulltrúi í Washington DC. Nú kemur hann að fyrirtækjum, einkum erlendis, og situr í ráðgjafaráði Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi og viðnámsþrótt. Garðar segist...