43 grindhvalir drápust á afskekktri strönd

43 grindhvalir drápust eftir að hafa strandað á austurströnd Nýja-Sjálands á föstudag. Hvalirnir strönduðu á Ngawi-strönd sem er afskekkt strönd á suðausturhluta norðureyju Nýja-Sjálands.The Guardian greinir frá. Fjöldi fólks reyndi að bjarga hvölunum en björgunaraðgerðirnar báru ekki árangur. Aðstæður til björgunar voru erfiðar. Hvalirnir voru dreifðir yfir nokkurra kílómetra svæði á ströndinni, brim var mikið, ströndin var grýtt og það torveldaði aðgerðir.Umhverfisverndarstofnun Nýja-Sjálands vinnur nú að því í samstarfi við Māori-ættbálkana á svæðinu að skipuleggja greftrun hvalanna. Hvalir eru álitnir heilagir og eru mikils metnir í menningu Māori. Nokkuð algengt er að hvalir strandi við strendur landsins, sér í lagi grindhvalir. Ástæður þess eru þó ekki með öllu þekktar.
43 grindhvalir drápust á afskekktri strönd

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar