Litla-Hraun er elsta starfandi fangelsið á Íslandi og um leið það stærsta. Á sama tíma og boðunarlistar lengjast þá tekst stór hluti fanga á við fíknisjúkdóma og margir eru einnig með taugaþroskaraskanir eins og ADHD.Jón Ingi Jónsson er fangavörður á Litla-Hrauni en hann hóf störf þar fyrir tæpum tveimur áratugum. Undanfarin ár hefur hann stýrt trésmíðaverkstæðinu og þar verður til margvíslegur varningur sem hægt er að kaupa í gegnum Fangaverk.Fangaverk er netverslun fyrir vörur sem framleiddar eru af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsanna til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.Jón Ingi er viðmælandi í 6. þætti Betrunar, þáttaraðar um fangelsismál Íslendinga í fortíð og nútíð á Rás 1.