Skemmtistaðurinn Broadway var opnaður við Álfabakka í Mjódd í Reykjavík 26. nóvember 1981.Broadway var vinsæll samkomustaður um árabil, sérstaklega um áramót. RÚV sendi beint út frá áramótafagnaði þar 1986-1987. Þá var staðurinn fluttur í Ármúla, á jarðhæð Hótels Íslands. Umsjónarmenn voru Arnþrúður Karlsdóttir, Valgeir Guðjónsson og Þorgeir Ástvaldsson.Eflaust eiga margir góðar minningar tengdar skemmtistaðnum Broadway í Reykjavík, hvort sem það var á áramótaballi, góðu kvöldi úti á lífinu, fegurðarsamkeppni eða annarri skemmtun.Í myndskeiðinu hér fyrir ofan má sjá brot úr útsendingunni. Þarna ræðir Valgeir Guðjónsson við Jón Pál Sigmarsson, sterkasta mann í heimi, og hrósar honum meðal annars fyrir góða takta á dansgólfinu. Við hlið Jóns Páls situr Ólafur Ragnar Grímsson, síðar forseti Í