Að minnsta kosti tuttugu og fjórir slösuðust í jarðskjálfta sem varð í Mið-Japan í gær, flestir minniháttar. Skjálftinn var af stærðinni 5,7 og voru upptök hans í Shizuoka-héraði vestur af Tokyo.Enginn er sagður hafa látist í skjálftanum og flóðbylgjuviðvörun var ekki gefin út. Nokkuð var um tjón á rúðum verslana og vörur féllu úr hillum. Skjálftinn olli töfum á lestarferðum, þar á meðal lestarferðum Shinkansen-hraðlestanna sem keyrðu á minni hraða en venjulega af öryggisástæðum.Skjálftinn vannst allt til Osaka, en þar varð einum erlendum ríkisborgara svo mikið við að finna skjálftann að hann féll af annarri hæð hússins sem hann var í. Útlendingurinn var fluttur á spítala til aðhlynningar.Þá varð annar skjálfti í Kumamoto-héraði í nótt og mældist sá 4,3 að stærð. Ekki hefur verið greint fr