Enginn flokkur náði meirihluta þingsæta í þingkosningunum á Nýja-Sjálandi í gær. Stærstu flokkarnir, Þjóðarflokkur forsætisráðherrans Christopher Luxon og Verkamannaflokkurinn, flokkur fyrrverandi forsætisráðherra Chris Hipkins, fengu hvor um sig 29% atkvæða.Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fær Þjóðarflokkurinn 42 sæti en Verkamannaflokkurinn 36 þingsæti.Fimm aðrir flokkar buðu fram til þings. Græningjum er spáð 16 sætum, ACT-flokknum 13, flokknum Nýja Sjáland fyrst er spáð 12 þingsætum og Te Pāti Māori er spáð 5 þingsætum. Hinum nýstofnaða Tækifærisflokki er spáð 7 þingsætum.Leiðtogi flokksins, Qiulae Wong, segist tilbúinn að vinna með bæði Þjóðarflokknum og Verkamannaflokknum. ÚRSLIT KYNNT 27. NÓVEMBER Búið er að telja 99% atkvæða en enn á eftir að telja atkvæði Nýsjálendinga sem kusu