Brúin í Norður-Kyiv var einnig skotmark Rússa í drónaárásum fyrr í vikunni.EPA / StringerAð minnsta kosti sex særðust í flugskeytaárásum Rússa á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í gær, aðfaranótt laugardags. Árásirnar beindust meðal annars að fjölbýlishúsum og leikskóla í Solomianskyi-hverfi.Rússar gerðu einnig árás á brú í Norður-Kíev sem er mikilvæg samgönguæð til og frá borginni. Brúnni hefur verið lokað fyrir umferð í báðar áttir vegna skemmda.Kyiv Independent segir að árásirnar hafi verið gerðar aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti varaði við því að miklar árásir væru yfirvofandi.