Fyrrum forseti Paragvæ, Santiago Peña, var ákærður í gær fyrir trúnaðarbrot og vanrækslu í starfi og fyrir að hagnast persónulega af viðskiptum Ueno-bankans sem féll í vikunni.Peña sagði af sér embætti á fimmtudag eftir að stjórnarandstæðingar lögðu fram beiðni á þingi um að hann yrði ákærður til embættismissis. Peña átti hlutabréf í móðurfélagi bankans fram á síðasta ár. Saksóknarar fóru fram á að hann yrði úrskurðaður í gæsluvarðhald og að allar eignir hans yrðu frystar.Saksóknarar yfirheyrðu einnig Carlos Carballo fyrrverandi seðlabankastjóra í gær. Hann er ákærður fyrir sömu brot og er líka farið fram á að eignir hans verði frystar. ÁHYGGJUFULLIR INNISTÆÐUEIGENDUR Fall bankans hefur skekið þjóðina en bankinn sá um reikninga fyrir nokkrar ríkisstofnanir og lífeyrismál ríkisins. Þá va