Hámar í sig frostpinna til að þola heitan búninginn

Söngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum var frumsýndur fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu í dag. Það tekur aðalleikarann um klukkutíma að breytast í Trölla fyrir hverja sýningu.„Við þurfum öll að mæta nokkuð snemma því þetta er mikið af geggjuðum leikgervum og svakalegum búningum,“ segir Björgvin Franz Gíslason, sem leikur aðalhlutverkið, sjálfan Trölla. Hann segir vissulega geta verið heitt að vera í búningnum. „Ég keypti tvo kassa af Sun Lolly og ég er eiginlega búinn með þá.“Uppselt er á allar sýningar fram yfir áramót, og þegar er byrjað að selja miða fyrir jólin 2027.En skyldi þetta vera draumahlutverkið?„Þetta er minn Shakespeare,“ segir Björgvin Franz. Hann segist þó ekki vera eins og Trölli inn við beinið. „Ég held ég sé nú allt of mikið jólabarn til þess.“
Hámar í sig frostpinna til að þola heitan búninginn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar