Isaac Herzog, forseti Ísraels, hefur falið Gadi Eisenkot að mynda ríkisstjórn. Takist Eisenkot að gera það tekur hann við sem forsætisráðherra af Benjamín Netanjahú, þaulsetnasta forsætisráðherra landsins.Eisenkot er leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Hann er fyrrverandi yfirmaður í Ísraelsher og nýgræðingur á sviði stjórnmála. Blokkin hans fékk 48 þingsæti eftir kosningarnar. 120 sæti eru í ísraelska þinginu Knesset, sem er til húsa í Jerúsalem. Hægri blokkin, sem Netanjahú leiðir, fékk 53 sæti á þinginu. Hvorugri tókst að tryggja sér meirihluta í kosningunum.Eisenkot hét því að gera allt í sínu valdi til að mynda nýja ríkisstjórn eftir að hann fékk stjórnarmyndunarumboðið. LANGT OG STRANGT FERLI FRAM UNDAN Búist er við að stjórnarmyndunin geti tekið margar vikur. Sá sem fær umboðið hefur