Ragnhildur Katla Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi Landverndar, hvetur fólk til að hugsa gjafir upp á nýtt þessi jólin og aðventuna. Dagur einhleypra er í næstu viku og eftir það fylgja aðrir afsláttardagar. Á sama tíma hvetur Landvernd til nægjusemi í Nægjusömum nóvember sem er árleg herferð sem er haldin í fimmta sinn í ár.