Rekstur Sjúkrahússins á Akureyri er ósjálfbær eins og hann er í dag og rekstrarvandi þess einn sá mesti í íslenska heilbrigðiskerfinu, að mati forstjóra. Þar stefnir í rúmlega tveggja milljarða króna rekstrarhalla á árinu.„Fjárlögin eru alltaf svona einu til einu og hálfu einu ári á eftir. Það er auðvitað bara mjög erfitt bara við alla ákvarðanatöku þegar maður er að stýra sjúkrahúsi að horfa síðan á hallann aukast og aukast þegar að þörfin hún eykst líka“, segir Guðjón Hauksson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri.Sjúkrahúsið á Akureyri sér fram á að fara meira en tvo milljarða fram úr fjárlögum þetta árið. Reksturinn er þungur að sögn forstjóra, sem segir það verða dýrkeypt að skerða heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.Í minnisblaði vegna fjárlaga undirstrikar forstjórinn þungan rekstur