Ungheill – ungmennaráð Barnaheilla stóð fyrir samtalsfundi í dag þar sem rætt var um þátttöku ungmenna og samráð við stjórnvöld. Hugmyndin með fundinum var að tala um vandamálin sem ungmenni hafa rekist á þegar opinberir aðilar kalla eftir skoðunum þeirra, svokallað sýndarsamráð – og finna lausnirnar til að bæta úr þeim.Mia Ðuric, sem er í stjórn Ungheilla, tók þátt í umræðum á fundinum. Fulltrúar Ungheilla hafa setið nokkra nefndarfundi á Alþingi í vetur og þar er að finna dæmi um sýndarsamráð, að sögn Miu.„Við komum punktum á framfæri og segjum hvað okkur finnst en svo endar fundurinn og tíminn líður, kannski nokkrir mánuðir, og ekkert er búið að breytast.“ FINNST EKKI TEKIÐ MARK Á ÞEIM Einnig eru dæmi um að unga fólkinu finnist ekki tekið mark á því. „Það er mikilvægast þegar það er