Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins segir ríkisstjórnina hafa brugðist í efnahagsmálum. Hún fór yfir stöðu mála í ræðu sinni á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins sem fram fór á Laugarbakka í dag.„Tvö ár eru liðin af kjörtímabilinu og verðbólgan er hærri en þegar ríkisstjórnin tók við. Við höfum glatað tveimur mikilvægum árum. Ríkisstjórnin skilar ekki bara auðu í efnahagsmálum, hún er beinlínis skaðleg,“ sagði Lilja sem benti á að verðbólga hefði mælst 5,9% í október og að stýrivextir væru enn háir en þeir eru 8%.„Það er ekki nóg að segjast vera með sleggju, henda í óteljandi sjálfur og halda að þetta gerist af sjálfu sér“ sagði Lilja, sem taldi ríkisstjórnina hafa lagt mikla áherslu á hallalaus fjárlög án þess að minnast á hver greiddi fyrir það markmið.„Það er grundvallarm