Skipulags- og framkvæmdaráð í Norðurþingi hefur lagt til að fyrirtæki sem vill byggja gagnaver fái úthlutaða lóð á Bakka, norðan Húsavíkur. Fyrirtækið hefur eins óskað eftir því að grafa rannsóknarholur á Bakka í nóvember.Greinilegur vilji er meðal sveitarstjórnarfólks í Norðurþingi til þess að reisa þar gagnaver og viðræður hafa staðið yfir við tvö fyrirtæki um að hefja starfsemi á Bakka: Giga42 og Eyrie DC, í eigu Akur Capital.Forsvarsmenn Eyrie DC vilja byrja að byggja sem fyrst og nú virðist styttast í að þeir geti fari að munda skófluna. Framkvæmda- og skipulagsráð hefur lagt til að fyrirtækið fái rúmlega átta hektara lóð á Bakka, en sveitarstjórn þarf svo að samþykkja það á næsta fundi sínum, síðar í mánuðinum.Þorsteinn Snævar Benediktsson, formaður skipulagsráðs, segir enn töluvert